Hugsanir mínar
Hvað veistu um mig ?
21.07.2006 17:25:24 / tinnast

eins og allir aðrir...

... þá langar mig að prufa eitthvað nýtt

www.tinnulingur.bloggar.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 17:28:08 / tinnast

Vá...

... þvílíkur léttir því við erum:
  • búnar að skila BS verkefninu okkar í þremur eintökum, innbundum og flottum ;) :haha::haha:
  • búnar að flytja fyrirlestur um BS verkefnið okkar og gekk það bara vel :haha:
og þá er bara eitt eftir...

... og það er að fara til Tailands á MORGUNN (eða eiginlega í nótt þar sem mæting er 05.00 á flugvöllinn 8))

kv.
Tinna sem er nánast orðinn sjúkraþjálfari ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 15:51:11 / tinnast

Pása...

... í bili.

Ég hef komist að því að bloggið mitt er orðið virkilega leiðinlegt... það eina sem ég hef frá að segja eru mínir daglegu viðburðir sem lesendur þessa bloggs hafa kannski ekki beint áhuga á. Þess vegna hef ég kosið að taka mér pásu þar til éghef frá einhverju skemmtilegu að segja...

Annars er það að frétta að það styttist svakalega i BS skil, það var því mikill léttir um daginn þegar við skiluðum inn síðustu köflunum :) nú er það eiginlega bara fínpúss eftir sem tekur samt sem áður alveg ótrúlega mikinn tíma. Vá hvað það er samt þægilegt að vera EKKI í prófum núna :haha::haha: hahhah

... og svo er það Thailand eftir 18 daga þar sem verður heldur betur slappað af og haft gott auk þess að skoða land og þjóð :haha: ... og kannski spreða aðeins pening 8|

Nú er allt að verða klárt í íbúðinni fyrir norðan og allt sem á að fara inn í hana er einnig að verða klárt :):). M&p gáfu mér hluta í borðstofuborði og stólum í útskriftagjöf og vá hvað það er flott og verður ennþá flottara þegar það fer á sinn stað í stofunni heima :).

En jæja þá er komið að kveðjustund í bili

Tinna

p.s Einar Paunky er gælunafn sem Þórunn gaf mér í grunnskóla, veit ekki alveg af hverju... kannski getur hún svarað því ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 17:51:00 / tinnast

Afmælisbörn dagsins...

Jæja jæja þá er Símon að nálgast þrítugsaldurinn en meir ;) - nú er það sko kostur að eiga afmæli í desember :)

.... til hamingju með afmælið ástin mín :haha::haha:

... svo má náttúrulega ekki gleyma henni Særúnu en stelpan er 25 ára í dag - bara stórafmæli

Til hamingju með afmælið gellos.

Svo átti náttúrulega Dúnna vinkona afmæli í gær og því verður að fylgja ein góð af henni, tekur sig svo svaka vel út með bumbuna sína.

Jæja er að fara að undirbúa mig fyrir kvöldið, greyið Lísa situr uppi með mig mömmu og pabba ;) :haha:

Kveðja úr borginni

Tinna


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 13:00:38 / tinnast

Páskar ofl

Jæja þá er páskafríi lokið og alvaran aftur tekin við :$. Ég hafði það svakalega gott í páskafríinu borðaði besta mat í heimi, svaf mjög mikið, lærði pínu ;) og djammaði auðvitað...

Norðuferðin byrjaði með djammi á miðvikudaginn og það var greinilegt þegar leið á kvöldið að við skötuhjú höfum ekki sofið allt of mikið undanfarið þar sem að við vorum aðeins drukknari en aðrir 8) og það má segja það að skírdagur hafi oft verið betri hjá mér;). En þetta var alveg þess virði því það var svaka fjör.

 Svo var kíkt í partý á föstudaginn líka en ég var eitthvað hálf slöpp ennþá þannig að mín lét það bara í friði að fara í bæinn :$. Laugardagurinn var sem betur fer aðeins hressari og kvöldið var notað til að fara í UFA reunion þar sem margt bar á góma og mikið var borðað :haha:

Aðaldjammið var svo á páskadag - ég ætlaði reyndar að vera bara róleg þar sem við vorum að fara að keyra suður daginn eftir, en eftir að bjórinn hans pabba fór að flæða þá var ekki aftur snúið :haha: og margir góðir slagarar teknir og verða án efa sendir í IDOLið á næsta ári því svo fagrar söngraddir hafa aldrei heyrst áður... humm humm hehehe. Læt hérna fylgja nokkrar myndir frá kvöldinu :

Símon auðvitað með Elvis glas :)

Ég og pabbi að taka úr uppþvottavélinni um miðnætti :)

Óli hennar Esterar

Ég, Gummi og Dúnna

Magga eitthvað að tjá sig

Massar eða hvað :)

Ég að stjórna tónlistinni - myndi giska að Álfheiður Björk kæmi næst ;)

Ég og Ester á leiðinni í Sjallann

Snilldar mynd ;)

Það voru sem sagt mjög þreyttir einstaklingar sem keyrðu suður í gær, eftir stutt stopp í afmæli hjá Bigga. Enda var rúmið séð í hyllingum síðustu metrana í bæinn.

Jæja best að skella sér upp í skóla og reyna að tölfræðast aðeins með honum Tóta...


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 18:16:51 / tinnast

Bloggidí blogg

Ætli að það sé ekki kominn tími á blogg...

Eins og síðasta færsla gaf til kynna þá er ég búin í lokaklínik sem þýðir að það eru einungis skil á BS verkefni sem er eftir svo að ég geti útskrifast sem sjúkraþjálfari :haha:.  Nema náttúrulega að ég geri einhverja skandala þessar þrjár vikur sem ég á eftir af verknáminu... 8|.

En vá hvað tíminn líður hratt, páskafrí eftir viku og vá hvað ég hlakka til að komast aðeins norður og hlaða batteríin fyrir lokatörnina sem verður ábyggilega svakaleg... mæli ekki með því að vera í verknámi 8 tíma á dag og eiga svo eftir að skrifa BS á kvöldin... aðeins of mikið af hinu góða.
Ég get ekki beðið eftir að hitta Dúnnu vinkonu og sjá hvort að hún sé ekki búin að blómstra all svakalega síðan ég sá hana síðan - enda tvö kríli að vaxa í mallanum hennar. Svo er það náttúrulega UFA hittingur og bætist einn meðlimur í viðbót í hópinn þannig að þetta verður bara svaka fjölmennt... og náttúrulega góðmennt.
Er líka svaka spennt að sjá hvernig gengur í íbúðinni okkar því það er farið að styttast svakalega í að við flytjum :haha::haha::haha:.

Það eru bara 58 dagar í Tæland og ég er búin að reiða fram besta vin minn hann VISA og borga herlegheitin þannig að nú er það bara að telja niður dagana og láta sig dreyma :D.

Gesturinn okkar hún Pála Dröfn er farin aftur norður og er því frekar tómt í kotinu enda erum við búin að vera með gesti nánast stanslaust í einn og hálfan mánuð.... Alltaf gaman að fá svona heimsóknir (... og laugardagsnammifélaga ;))

Jæja þarf að skella mér upp í skóla
Bið að heilsa í bili - bara eitt að lokum

ÁFRAM MA !!!!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 20:06:34 / tinnast

Til hamingju ég !!!!







Ég er búin í lokaklíník !!!!!!













 

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 15:14:29 / tinnast

Árshátíð og fleira...

Það er greinilegt að það eru kosningar í nánd því að árshátíðin hjá Kópavogsbæ var sú flottasta :haha::haha:. Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum, Örn Árnason fór á kostum sem veislustjóri, Bubbi tók réttu lögin þannig að allir gátu sungið með, Eyvi og Stebbu klikkuðu náttúrulega ekki og svo kláraði BÓ kvöldið. Þau einu sem ég fílaði ekki voru Guðrún Gunnars og Friðrik Ómar... einhvern vegin ekki mínar týpur. Það var reyndar snilld þegar þau voru kynnt á svið því Guðrún átti bara að vera ein, Símon er heldur ekki mesti aðdáandinn og fagnaði því ekkert gífurlega þegar hún var kynnt á svið, ein samstarfskona hans sagði þá við hann vertu bara fegin að hún hafi ekki dregið strákinn hann Friðrik með sér, um leið og hún sleppti orðinu var hann kynntur til leiks :haha::haha::haha:... algjör snilld.

Annað snilldaratriði var að sjá Gunnar Birgis taka dans við besta lag allra tíma... Nínu en ekki hvað :D.Þetta kvöld var sem sagt snilldarkvöld í alla staði.

Á föstudaginn var reyndar líka snilldarkvöld, okkur fjórða árs nemum var boðið í Bata sjúkraþjálfun í vísindaferð og auðvitað lét maður það ekki fram hjá sér fara. Eftur nokkur glös var drifið sig á Vegamót og borðað og vá hvað maturinn er góður þar.... uuuuhhhhmmmm. Við vorum reyndar svo léleg í djamminu því flestir vru komnir heim löngu fyrir háttatíma, enda flestir sem þurftu að eyða laugardeginum í lærdóm :^).

Jæja læt þetta nægja í bili, þarf að fara að fínpússa lokaklínikskýrsluna svo að allt sé nú á hreinu á fimmtudaginn þegar ég þarf að sýna allt það sem ég kann....



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 21:16:13 / tinnast

Snilldar próf...

... sem ég fann hjá Huldu Rún.

Endilega takið þátt, ég hló alla veganna yfir niðurstöðunum ;)

 http://www.crushcalculator.com/content/love/482511438

kv.

Tinna sem er að fara yfir um af stressi :$8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 22:23:51 / tinnast

...

Mig langar til að byrja þetta blogg á því að óska pabba innilega til hamingju með afmælið í gær en hann varð 49 ára .... eða nei það var víst 48 ára :haha:. Ég ruglaðist aðeins í reikningnum ;). Svo varð tengdapabbi líka 61 árs í fyrradag þannig að hann fær hér með líka kveðju.

Mamma og pabbi um áramótin síðustu, ég er ekki frá því að ég sjái hreinlega að ég sé nú pínu lík pabba á þessari mynd..

Annars er bara alveg þónokkuð að frétta því ég er byrjuð í átakinu í bikínið fyrir Tailand:haha:. Ég meira segja gerði nokkuð sem ég hélt hreinlega að ég gæti ekki gert þar sem ég var orðin svo háð þessu...

... ég hætti að drekka kók og hef ekki drukkið kók í tæpan mánuð :haha: - dugnaður eða hvað. Svo er ég meira að segja líka hætt að borða nammi, nema náttútulega á laugardögum og farin að borða óendanlega mikið af grænmeti og ávöxtum. Þetta hefur verið frekar erfitt sérstaklega þar sem Sísí býr hjá mér núna og hún er sko EKKI í átaki þannig að meðan hún hámar í sig nammi þá sit ég og drekk vatn :^). Talandi um Sísí og átakið mikla þá upplifði ég mjög sérkennilega stund um daginn þegar ég heyrði fagnaðaróp frá baðinu, það er nú ekki á hverjum degi sem einhver fagnar við þá iðju sem er framkvæmd þar inni 8|. Þetta átti sér samt mjög sérkennnilega skýringu... jú hún Sísí hafði þyngst um ein sex kíló og var svona í skýjunum yfir því... ég sé það einmitt gerast einhvern daginn hjá mér þegar ég er orðinn tannstöngull eftir þetta gífurlega átak hjá mér :$ 

Svo er maður náttúrulega loksins byrjaður í ræktinni og vei vei ég get hlaupið án þess að vera að drepast í bakinu - vá hvað ég er óendanlega ánægð enda ekki getað hlaupið í tæpt ár :haha:. Ég fer sem sagt í Sporthúsið alla vegana annan hvern dag og svo vonandi alla virka daga strax eftir vinnu.. þannig að ef einhver nennir að djóna mér þá endilega skellið ykkur í Sporthúsið svona um fjögur á daginn því að mér leiðist dálítið svona einni í ræktinni :$

Jæja ég er farin að horfa á despo

Tinna sem gerir ekkert annað en að vinna, ræktast og skrifa Bs vúhú


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:57:37 / tinnast

...

... blogg kemur á morgunn - vantar bloggandann en hef heilmikið að segja

þangað til þá
...

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 19:41:20 / tinnast

Leti, leti, leti...

... er ástæðan fyrir því að ég hef ekki nennt að blogga.
Ég ætla að hafa þetta í formi örbloggs því það tekur svo stuttann tíma ;)
  • ...fann mér svaka flottann kjól
  • fór á árshátíð sem tókst með eindæmum vel - atriðið okkar var magadans og afró - svaka flott, það hefði reyndar ábyggilega verið aðeins flottara ef að það hefði verið aðeins fyrr um kvöldið :haha: humm humm maður var aðeins orðinn léttur þegar það var þannig að takturinn var ekki sá besti í heimi ;):haha:
  • byrjaði í verknámi í Táp í Kópavogi og lýst svaka vel á
  • hætti í Sóltúni eftir að hafa unnið þar í 2 og hálft ár með skólanum 8|
  • Sísí flutti til okkar til að koma í verknám í borgina :P
  • skrapp norður um helgina í 100 ára afmæli. Kíktum á íbúðina í leiðinni og lítur allt vel út, þetta verður held ég svaka flott þegar allt er tilbúið :haha::haha:
  • hef verið að skrifa á fullu í Bs - gengur samt mjög hægt eitthvað (smá stress í gangi þessa dagana :$)
  • jæja vegna stress þá held ég að ég verði að fara að halda áfram að skrifa :!:
Verið þið hress, ekkert stress, bless, bless
Tinnulíus

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 14:04:14 / tinnast

Árshátíð

Jæja þá styttist í mína síðustu árshátíð sem sjúkraþjálfanemi og ég gæti alveg hreint trúað því að hún verði hreinlega sú besta sem haldin hafi verið - enda einungis snillingar að undiebúa hana :haha::haha::haha::haha:... er það ekki.
Ég er sem sagt í skemmtinefnd og erum við undanfarin mánuð búin að vera að skipuleggja þetta og hefur að okkar mati bara tekist vel til ;). Þar sem við erum nú pínulítil deild innan HÍ þá höfum við engin gífurleg fjárráð og því eru skemmtiatriðin undir okkur komin. Hvert ár sér sem sagt um eitt skemmtiatriði og er bekkurinn minn alveg ofvirkur í því að gera alltaf flottara og flottara skemmtiatriði - enda er spennan yfirleitt orðin svo svakaleg hjá okkur þegar líður að skemmtiatriðinu að við getum varla setið kjurr. Það má líka segja að maður missi sig alveg í atriðinu og allir sýna sinn besta performans. Á fyrsta ári vorum við með þennan þvílíka sirkus sem endaði á magadansatriði þar sem dansað var við Leonce og strákarnir voru í magadansbúningi ;) (tilneyddir reyndar). Næst tókum við dans við Britney lag og Dröfn og Sigga tóku Ást á pöbbnum eftir Leonce - þar sem að Dröfn klæddist nákvæmlega eins og hún :). Atriði í fyrra toppaði svo allt því að við tókum dansinn við lagið call on me sem var náttúrulega mesta snilld í heimi :haha::haha:. Ég má ekki uppljóstra fyrr en á sunnudaginn hvað við munum taka í ár enda er það hernaðarleyndarmál. En ég get sagt ykkur að það eru ófáir tímarnir sem hafa farið í æfingar á þessu atriði :haha:8|

En þá er það aðal vandamálið - ég hef ekki hugmynd í hverju ég ætla að vera og árshátíðin er á morgunn !!!!! úpps. ég er búin að ganga búð úr búð og ekki fundið einn einasta kjól sem mig langar að vera í.... nema einn sem kostaði tæp 23.000 og fannst mér það heldur mikið fyrir eina kvöldstund.... Ég fékk þó hrós inni í einni kjólabúðinni í gær þar sem afgreiðislukonan var svo svakalega hrifin af hárinu á mér :P.

En jæja ég held að ég verði að fara að halda leitinni áfram að kjólnum

Kveðjur úr borginni
Júra

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 18:09:19 / tinnast

Hvað þýðir nafnið mitt ???

Tinna --
[adjective]:

Visually addictive

'How will you be defined in the dictionary?' at QuizGalaxy.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 17:55:05 / tinnast

Komin suður aftur

Eins og titillinn gefur til kynna þá komumst við á leiðarenda á fimmtudaginn. Ég hef nú alveg keyrt í betra veðri þar sem við sáum varla fram fyrir bílinn frá Borgarnesi og alla leið yfir Holtavörðuheiðina. En við komumst heim og það var fyrir öllu.
Ég náði að afreka helling á eyrinni þar á meðal:
  • fara í klippingu og litun :haha:
  • farið í plokk og lit
  • borðað mjög góðan mat og fengið mér aðeins í tánna
  • farið og skoðað niður í íbúð og leist mjög vel á :haha:
  • horft á Silvíu Nótt rústa Eurovision
  • sungið Til hamingju Ísland nokkrum sinnum
  • farið í partý með Sísí og vinkonum og beilað á að fara á Jet Black Joe í Sjallanum
  • hitt Dúnnu, Andra, Hönnu, Nonna, Eyrúnu og Þórdísi Júlíu í hádegiskaffi. Alltaf gaman að hitta þau öll svona í einu þar sem það gerist allt of sjaldan
  • og margt margt fleira
Jæja er að fara að gæða mér á einhverjum góðum mat
Kv. úr borginni
Tinns pinns

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11